Beint í efni

Okk­ar Kópa­vog­ur

Okkar Kópavogur er eitt helsta íbúalýðræðisverkefni Kópavogsbæjar þar sem íbúar leggja fram hugmyndir og kjósa um smærri nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni, og taka þannig virkan þátt í að móta bæinn sinn.

Verkefnið er þrískipt með hugmyndasöfnun og rafrænni kosningu, sem íbúar taka virkan þátt í, og bærinn sér síðan um framkvæmd valinna verkefna.

Okkar Kópavogur styrkir íbúalýðræði og tryggir að raddir íbúa hafi raunveruleg áhrif á forgangsröðun fjármagns og framkvæmdir.

Íbúa­kosn­ing fyr­ir árin 2025-2027

Infrarauðar saunur og yfirbyggðir stigar í rennibrautir beggja sundlauga Kópavogs, vélfryst skautasvell í Kópavogsdal, bleikir bekkir til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, aðstaða til sjósunds á Kársnesi og endurnýjun og stækkun á leiksvæði við Menningarhúsin er meðal þess sem íbúar Kópavogs völdu áfram í kosningum í verkefninu Okkar Kópavogur 2024-2025.

Rafrænar kosningar í verkefninu stóðu yfir frá 23. janúar - 4. febrúar. Á kjörskrá voru 34.982 íbúar og alls kusu 3540 íbúar, eða 10,1% kjósenda. Kópavogur hefur hlotið viðurkenningu UNICEF sem barnvænt sveitarfélag og var ungmennum fæddum árið 2011 og eldri boðið að taka þátt í kosningum. Ungmennin þurftu rafræn skilríki til að kjósa.

Alls komust 15 hugmyndir af samtals 67 áfram í kosningunni. Allt að 340 milljónum verður varið í framkvæmdirnar árin 2025-2027.

Þetta var í fimmta sinn sem verkefnið Okkar Kópavogur var haldið í Kópavogsbæ. Hugmyndir íbúa sem kosnar hafa verið inn hafa lífgað upp á bæinn síðan árið 2016 og munu ný verkefni bætast við fjölmörg önnur.

Framkvæmdaáætlanir þeirra verkefna sem voru kosin áfram árin 2016, 2018, 2020 og 2022 má sjá í listanum hér að neðan.

Markmið verkefnisins var að hvetja íbúa til að taka þátt í málefnum sem varða nærumhverfi þeirra, fá þá til að leggja fram hugmyndir, forgangsraða og útdeila fjármagni í smærri framkvæmdir á vegum bæjarins með íbúakosningu.

Þátttaka í verkefninu var valkvæð og vinnsla þeirra upplýsinga sem söfnuðust byggði á samþykki þátttakenda sem gefið var við innskráningu með rafrænum skilríkjum. Þær hugmyndir sem kosnar voru fara í framkvæmd árin 2025, 2026 og 2027.

Gögn sem söfnuðust við vinnsluna var eytt að lokinni úrvinnslu.

Þínar hug­mynd­ir - okk­ar fram­tíð

  • Okkar Kópavogur 2024-2027

    Fimmta lota Okkar Kópavogs fólst í því að íbúar kusu um verkefni sem fóru í framkvæmd á árunum 2025–2027 og fjármagni var úthlutað í samræmi við niðurstöður kosninga. Verkefnið byggði á reynslu fyrri ára með enn meiri áherslu á aðgengi, barnvæna nálgun og skýra eftirfylgni með framkvæmdum. Jafnframt var Kópavogi skipt í efri byggðir og neðri byggðir og heildarupphæðin hækkuð til muna, úr 200 milljónum króna í 340 milljónir króna sem skiptust niður á þrjú ár.

  • Okkar Kópavogur 2021-2023

    Verkefnið náði breiðari þátttöku og tengdist enn frekar markmiðum um barnvænt sveitarfélag og aukið íbúalýðræði, á sama tíma og íbúakosningar voru samþættar betur öðrum samráðsleiðum bæjarins og tengdar stafrænum lausnum, sem styrkti yfirsýn og samskipti við íbúa.

  • Okkar Kópavogur 2019-2021

    Áhersla var lögð á að auka áhrif íbúa og bæta ferlið með stafrænu samráði á Betra Íslandi, auk þess að efla rafræna þátttöku og veita skýra upplýsingagjöf um stöðu verkefna, sem jók aðgengi og gagnsæi í ferlinu.

  • Okkar Kópavogur 2017-2018

    Verkefnið þróaðist áfram með aukinni þátttöku íbúa, skýrara ferli og fjölgun hugmynda sem bárust beint frá íbúum um smærri framkvæmdir og viðhald í hverfum bæjarins.

  • Okkar Kópavogur 2016

    Fyrsta framkvæmd Okkar Kópavogs markaði einnig fyrstu íbúakosningu Kópavogsbæjar, þar sem íbúar fengu í fyrsta sinn beina aðkomu að og ákvörðunarvald um forgangsröðun verkefna í nærumhverfi sínu. Verkefnið lagði þannig grunn að formlegu þátttökulýðræði í bænum.

Fyrirspurnir og upplýsingar

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum má senda fyrirspurn á netfangið okkarkopavogur(hjá)kopavogur.is.

Okkar Kópavogur - Kópavogsbær