Íbúasamráð
Íbúasamráð í Kópavogi er vettvangur þar sem bæjarbúar geta haft áhrif á þróun og þjónustu bæjarins.
Markmiðið er að efla íbúalýðræði, nýta hugmyndir íbúa til umbóta og tryggja að ákvarðanir endurspegli þarfir og sjónarmið samfélagsins. Með samráði byggjum við sterkara og samstilltara samfélag.

Okkar Kópavogur
Okkar Kópavogur er eitt helsta íbúalýðræðisverkefni Kópavogsbæjar þar sem íbúar leggja fram hugmyndir og kjósa um smærri nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni, og taka þannig virkan þátt í að móta bæinn sinn.

Samráð um ákveðin svæði
Kópavogsbær leitar reglulega til íbúa og hagaðila við skipulag og þróun einstakra svæða með það að markmiði að tryggja að uppbygging og ásýnd endurspegli þarfir, hugmyndir og upplifun þeirra sem búa við svæðin og/eða nota þau.

Samráð um stefnur og sáttmála bæjarins
Stefnur og sáttmálar Kópavogsbæjar eru mótaðir í víðtæku samráði við íbúa, starfsfólk og hagaðila, þar sem lögð er rík áhersla á þátttöku til að tryggja að stefnumótun endurspegli raunverulegar þarfir samfélagsins og byggi á sameiginlegri framtíðarsýn.

Óflokkað efni
Kópavogsbær nýtir íbúasamráð í fjölbreyttum verkefnum þar sem kallað er eftir ábendingum og hugmyndum um ólík málefni. Samráðið nær einnig til fjölbreyttra sviða utan hefðbundinna skipulags- og stefnumála með það að markmiði að bæta þjónustu, menningu og lýðræðislega þátttöku.

Börn og ungmenni
Íbúasamráð við börn og ungmenni er fastur og markviss hluti af stjórnsýslu Kópavogs og styður beint við markmið bæjarins sem barnvæns samfélags.

Skipulagsmál
Íbúasamráð í skipulagsmálum er lögbundinn hluti af skipulagsferlinu á Íslandi. Kópavogsbær leggur aukna áherslu á virkt og opið samráð umfram lagakröfur.