Beint í efni

Deili­skipu­lag

Deiliskipulag er unnið fyrir afmörkuð svæði og byggir á stefnu aðalskipulags.

Stefnan er útfærð nánar fyrir hvert svæði með það að markmiði að skapa heildstætt yfirbragð byggðar og landslags.

Hvað felst í deili­skipu­lagi?

Deiliskipulag skapar ramma um þróun einstakra svæða og tryggir að uppbygging taki mið af umhverfi, innviðum og heildaryfirbragði hverfisins. Skipulagið sýnir fyrirhugaða þróun svæðisins og veitir íbúum, lóðarhöfum og framkvæmdaraðilum skýra mynd af uppbyggingunni.

Deiliskipulag setur bindandi skilmála um:

  • Lóðir og lóðanotkun.
  • Byggingarreiti og byggðarmynstur.
  • Nýtingarhlutfall.
  • Útlit og form mannvirkja.

Slíkar forsendur þurfa að liggja fyrir áður en hægt er að veita byggingar- eða framkvæmdaleyfi.

Hönn­un­ar­gögn og leið­bein­ingar

Hér má nálgast sniðmát og leiðbeiningar vegna grenndarkynninga.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna á vef Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

Ef óskað er eftir frekari hönnunargögnum er hægt að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Deili­skipu­lag Vatns­enda­hvarfs

Samkvæmt samþykktu deiliskipulagi mun nýtt íbúðahverfi rísa á Vatnsenda með um 500 íbúðum í sérbýli og fjölbýli.

Nánari upplýsingar

Fyrirspurnir og ábendingar má senda í gegnum ábendingakerfi bæjarins eða á skipulag@kopavogur.is

Deiliskipulag - Kópavogsbær