Beint í efni

Skipulag

Með skipulagi er ákveðið hvernig land er nýtt og bærinn þróast. Í skipulagi er meðal annars mótuð stefna um íbúðar- og atvinnusvæði, samgöngur, þjónustu, græn svæði og þróun hverfa.

  • Skipulagssvæðið nær yfir þróunarsvæði ÞR-1, sem skilgreint er í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 ás…

    Aðalskipulag

    Aðalskipulag er skipulagsáætlun sem nær til alls sveitarfélagsins og leggur grunn að deiliskipulagi.

  • Úr tillögu að breyttu deiliskipulagi.

    Deiliskipulag

    Við gerð deiliskipulags er byggt á stefnu aðalskipulags og hún útfærð fyrir viðkomandi svæði til að myndist heildstætt yfirbragð mannvirkja og landslags.

  • Myndin sýnir ný fjölbýlishús í Smárahverfi, í baksýn eru nýbyggingar í austurhluta Glaðheimahverfis…

    Hverfisáætlun

    Hverfisáætlun er stefnumótandi vinna sem lýsir stöðu hverfis og framtíðarsýn þess. Hún er vísir að gerð deiliskipulags og framkvæmdaáætlun.

  • Skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu

    Skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu

    Hér eru birtar skipulagshugmyndir og framkvæmdaleyfi sem eru í kynningu. Íbúar geta kynnt sér verkefnin og komið á framfæri athugasemdum.

  • Skipulagsskilmálar

    Skipulagsskilmálar

    Skipulagsskilmálar segja til um hvernig byggja má á deiliskipulögðum svæðum, til dæmis varðandi stærð bygginga, þakform, útlit og frágang lóða.

  • Svæðisskipulag

    Svæðisskipulag

    Svæðisskipulag er skipulagsáætlun sem nær til tveggja eða fleiri sveitarfélaga sem mynda sameiginlegt svæði. Hlutverk þess er að samræma stefnu um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar til lengri tíma.

Þéttingarsvæði

Þétt­ing­ar­svæði

Þéttingarsvæði eru svæði innan núverandi byggðar þar sem unnið er að þróun, uppbyggingu eða breytingum á skipulagi.

Hér má nálgast upplýsingar um svæðin sem eru í vinnslu hjá Kópavogsbæ.

Sjá nánar
Skipulag - Kópavogsbær