Fatlað fólk
Kópavogsbær veitir fjölbreytta þjónustu og stuðning fyrir fatlað fólk.
Markmiðið er að efla sjálfstæði, þátttöku og vellíðan í daglegu lífi. Þjónustan er veitt í samræmi við réttindi fatlaðs fólks og er tekið mið af þörfum og aðstæðum hvers og eins.
Hægt er að bóka samtal við ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks ef þörf er á upplýsingum eða aðstoð.
Atvinna og nám
Kópavogsbær býður upp á úrræði sem styður fatlað fólk í námi og starfi.
Skammtímadvöl
Skammtímadvöl er þjónusta fyrir fötluð börn og ungmenni með miklar stuðnings- og umönnunarþarfir.
Akstursþjónusta
Akstursþjónusta er fyrir fatlað fólk sem getur ekki notað almenningssamgöngur eða eigin bíl.
Stuðnings- og stoðþjónusta
Stuðnings- og stoðþjónusta er fyrir fatlað fólk sem býr á eigin heimili og þarf stuðning í daglegu lífi. Markmið þjónustunnar er að styðja fólk til sjálfstæðs lífs og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Þjónustan er sniðin að þörfum hvers og eins og getur verið veitt bæði innan og utan heimilis.
Þú getur meðal annars fengið:
- Stuðning við athafnir daglegs lífs.
Til dæmis við skipulag dagsins eða dagleg verkefni. - Stuðning við heimilishald
Til dæmis heimilisþrif eða við önnur verkefni á heimilinu. - Félagslegan stuðning
Sem miðar að því að draga úr félagslegri einangrun og styðja við þátttöku í samfélaginu. - Heimsendan mat
Fyrir þau sem geta ekki séð um matseld sjálf og hafa ekki tök á að borða í félagsmiðstöð. - Aðstoð viðbragðsteymis
Þegar þörf er á tiltekt á heimili áður en þjónusta getur hafist. - Hópstuðning
Þegar það á við og í samráði við viðkomandi einstakling.
Ef stuðningsþjónusta dugar ekki til er einnig hægt að veita stoðþjónustu.
- Stuðning við athafnir daglegs lífs.
Sótt er um stuðnings- og stoðþjónustu rafrænt á Minn Kópavogur. Einnig er hægt að skila inn skriflegri umsókn í þjónustuver.
Eftir að umsókn berst er stuðningsþörf umsækjanda metin og umsókn tekin til afgreiðslu.
Börn og ungmenni undir 18 ára aldri geta einnig fengið stuðningsþjónustu sem er sniðin að þeirra þörfum.
Fatlað fólk hefur rétt á að velja hvernig og hvar það býr. Í Kópavogi getur fatlað fólk fengið stuðning við heimilishald og til að lifa sjálfstæðu lífi hvort sem er í eigin íbúð, leiguíbúð á almennum markaði eða félagslegri leiguíbúð á vegum Kópavogsbæjar.
Búseta og stuðningur
Fatlað fólk á rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir.
Kópavogsbær rekur íbúðakjarna og heimili sem hefur verið hannað með þarfir fatlaðs fólks í huga. Þjónusta stendur þeim til boða sem styður við sjálfstæða búsetu og á að auðvelda aðlögun og þátttöku í samfélaginu.
Austurkór
Forstöðumaður: Þórdís Adda Haraldsdóttir
Sími: 441 9561
Dimmuhvarf
Forstöðumaður: María Elísabet Hjarðar
Sími: 441 9580
Fossvogsbrún
Forstöðumaður: Íris Ingþórsdóttir
Sími: 441 9590
Hörðukór
Forstöðumaður: Steinunn Helga Óskarsdóttir
Sími: 441 1812
Kópavogsbraut
Forstöðumaður: Sigríður Heiða Kristjánsdóttir
Sími: 441 1870 / 441 1871
Marbakkabraut
Forstöðumaður: Anna Margrét Gunnarsdóttir
Sími: 441 9671
Skjólbraut
Forstöðumaður: Sigríður Hildur Snæbjörnsdóttir
Sími: 564 2229 / 441 9660
Kleifakór
Forstöðumaður: Bryngerður Bryngeirsdóttir
Sími: 441 1881
Hrauntunga (áfangaheimili)
Forstöðumaður: Sólrún Þrastardóttir
Sími: 441 9650Fatlað fólk sem þarf sérstakt húsnæði og stuðning getur sótt um búsetu í íbúðakjörnum. Þar fær fólk þjónustu eftir sínum þörfum allan sólarhringinn eða hluta úr degi.
Sótt er um rafrænt á Minn Kópavogur.

Dvöl - Samfélagshús
Í Dvöl kemur fólk á eigin forsendum til að njóta samveru. Áhersla er lögð á sjálfstæði, virkni og bætt lífsgæði. Dvöl er fyrir fólk óháð búsetu sem vill sækja sér félagsskap og taka þátt í fjölbreyttu starfi í notalegu umhverfi.
Boðið er upp á heitan mat gegn vægu gjaldi, listasmiðju og skapandi verkefni. Fjölbreytt dagskrá er í boði og alltaf heitt á könnunni.
Öll velkomin!
NPA - Notendastýrð persónuleg aðstoð
NPA byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf.
Með NPA hefur fatlað fólk fulla stjórn á eigin aðstoð og ákveður hvernig stuðningur er skipulagður, hvenær hann fer fram og hver veitir hann. Markmiðið er að styðja við sjálfstætt og innihaldsríkt líf með fullri þátttöku í samfélaginu.
Hægt er að bóka samtal við ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks til að fá upplýsingar um NPA og umsóknarferlið.
Til að eiga rétt á NPA þarf meðal annars að:
- Eiga lögheimili í Kópavogi.
- Vera með staðfesta fötlun.
- Þurfa reglulegan og umfangsmikinn stuðning
- Vera 18 ára eða eldri (foreldrar eða forsjáraðilar geta sótt um fyrir hönd barns).
- Búa sjálfstætt eða í foreldrahúsum.
Fólk sem býr í sértæku húsnæði getur í ákveðnum tilvikum sótt um NPA ef stefnt er að sjálfstæðri búsetu.
Sótt er um NPA hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar.
Umsókn er unnin í samvinnu við umsækjanda þar sem farið er yfir aðstæður, stuðningsþarfir og þá þjónustu sem þegar er til staðar.
Leiðbeint er um hvaða gögn þurfa að fylgja umsókn.
Ef umsókn er samþykkt er gerð áætlun um umfang stuðnings og fjölda vinnustunda. Í kjölfarið getur tekið við bið eftir úthlutun. Á meðan er haft reglulegt samráð og upplýsingar veittar um stöðu mála og aðra þjónustu sem stendur til boða.
Ef umsókn er synjað er hægt að óska eftir endurskoðun eða kæra ákvörðun.
Notandi með NPA er verkstjórnandi eigin aðstoðar og hefur stjórn á því hvernig stuðningurinn er skipulagður og framkvæmdur.
Það felur meðal annars í sér:
- Að taka þátt í vali á aðstoðarfólki.
- Skipulagi vinnu
- Daglegri framkvæmd þjónustunnar.
Notandi getur valið sér umsýsluaðila sem sér um umsýslu samnings, launagreiðslur og starfsmannamál aðstoðarfólks.
Í ákveðnum tilvikum er einnig hægt að fá stuðning við verkstjórnarhlutverkið með aðstoðarverkstjórnanda.
Notendasamningar
Notendasamningar eru fyrir þau sem þurfa reglulegan og umfangsmikinn stuðning í daglegu lífi og vilja hafa meiri stjórn á því hvernig stuðningurinn fer fram.
Með notendasamningi fær fólk fjármagn í stað hefðbundinnar þjónustu og getur sjálft skipulagt stuðninginn út frá eigin þörfum og aðstæðum. Þessu fyrirkomulagi er ætlað að skapa meira svigrúm og sveigjanleika í daglegu lífi.
Bókaðu samtal við ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks til að fá upplýsingar um notendasamninga, umsóknarferlið og þann stuðning sem stendur til boða.
Notendasamningar eru fyrir þau sem:
- Eiga lögheimili í Kópavogi.
- Eru með viðvarandi og umfangsmikla stuðningsþörf.
- Búa á eigin heimili eða foreldrahúsum.
- Þurfa reglulegan stuðning í daglegu lífi.
Foreldrar eða forsjáraðilar geta sótt um fyrir hönd fatlaðra barna.
Stuðningsþörf er fyrst metin af starfsfólki velferðarsviðs Kópavogs. Á grundvelli matsins er ákveðið umfang stuðnings og fjárhæð samnings.
Með notendasamningi sér fólk sjálft um skipulag stuðningsins, þar á meðal ráðningu og umsýslu aðstoðarfólks. Þannig getur stuðningurinn verið sveigjanlegri og betur sniðinn að daglegu lífi og þörfum hvers og eins.
Notendasamningar geta meðal annars náð til stuðningsþjónustu og stoðþjónustu, en ná ekki til þjónustu eins og skammtímadvalar, akstursþjónustu eða dagdvalar aldraðra.
Sótt er um notendasamning rafrænt á Minn Kópavogur.
Með umsókn þurfa að fylgja gögn sem staðfesta stuðningsþörf, til dæmis:
- Sjálfsmat.
- Læknisvottorð.
- Örorku- eða umönnunarmat.
- SIS eða RAI mat eftir því sem við á.
Umsóknir eru metnar út frá reglum Kópavogsbæjar og mati á stuðningsþörf umsækjanda.
Með notendasamningi hefur fólk áhrif á hvernig stuðningurinn er skipulagður og hvenær hann fer fram.
Það felur meðal annars í sér að:
- Sjá um skipulag stuðnings.
- Ráða aðstoðarfólk.
- Bera ábyrgð á umsýslu og ráðstöfun fjármagns samkvæmt samningi.
- Skila reglulega upplýsingum og gögnum til velferðarsviðs.
Lögð er áhersla á samráð, sveigjanleika og að þjónustan taki mið af þörfum og aðstæðum hvers og eins.
Notendasamningar eru tímabundnir og fara reglulega í gegnum endurmat. Fylgst er með hvernig stuðningurinn nýtist og hvort þörf sé á breytingum á umfangi þjónustunnar.
Ef aðstæður breytast getur farið fram nýtt mat á stuðningsþörf.