Eldra fólk
Í Kópavogi er lögð áhersla á að eldra fólk geti búið heima sem lengst með viðeigandi stuðningi. Þjónustan sem er í boði byggir á virðingu, sjálfsákvörðunarrétti, öryggi og vellíðan.
Hægt er að bóka samtal við ráðgjafa eldra fólks ef þörf er á upplýsingum eða aðstoð.
Akstursþjónusta
Akstursþjónusta er fyrir íbúa sem geta ekki nýtt sér almenningssamgöngur eða eigin bíl til að komast ferða sinna.
Færni- og heilsumat
Færni- og heilsumat metur þörf fyrir varanlega dvöl á hjúkrunar- eða dvalarheimili. Gilt mat þarf áður en sótt er um langtímadvöl.
Virkni og vellíðan
Virkni og Vellíðan er verkefni sem miðar að heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri í Kópavogi.
Að eldast
Eldra fólk og aðstandendur getur nálgast hagnýtar upplýsingar í tengslum við það að eldast

Félagsstarf og heilsuefling
Boðið er upp á fjölbreytt félagsstarf og heilsueflingu fyrir eldra fólk með áherslu á hreyfingu, samveru og góða líðan.

Stuðningsþjónusta
Stuðningsþjónusta í formi heimastuðnings. Þjónustan er ætluð fólki sem býr á eigin heimili og þarf stuðning vegna skertrar getu, fötlunar, fjölskylduaðstæðna, álags eða veikinda. Stuðningurinn getur meðal annars falist í aðstoð við athafnir daglegs lífs, heimilishald og heimsendingu matar.
Þjónustuíbúðir
Í Kópavogi eru fjölbreytt búsetuúrræði fyrir eldra fólk sem vill búa sjálfstætt í öruggu umhverfi með aðgang að fjölbreyttri þjónustu. Íbúðirnar eru staðsettar víða í bænum og í nálægð við fjölbreytta þjónustu, félagsstarf og útivist.
Sunnuhlíðarsamtökin reka 109 þjónustuíbúðir fyrir fólk 60 ára og eldra við Kópavogsbraut 1A og 1B og við Fannborg 8. Íbúðirnar eru af mismunandi stærðum og gerðum og hugað er að góðu aðgengi, öryggi og notalegu umhverfi.
Íbúar hafa aðgang að sameiginlegri aðstöðu og fjölbreyttri þjónustu í nærumhverfi, þar á meðal:
- Félagsstarfi
- Matsal
- Hársnyrtingu
- Fótaaðgerðum.
Við Kópavogsbraut er innangengt í þjónustukjarna Sunnuhlíðar þar sem boðið er upp á ýmsa þjónustu og reglulegar uppákomur. Stutt er í sundlaug, gönguleiðir og þjónustu í miðbæ Kópavogs.
Í Fannborg 8 er félagsmiðstöðin Gjábakki á jarðhæð hússins þar sem hægt er að taka þátt í félagsstarfi, setjast niður yfir kaffibolla og fá hádegisverð alla virka daga.
Íbúðir Sunnuhlíðarsamtakanna eru með búseturétti en ekki hefðbundnu eignarfyrirkomulagi.
Boðaþing býður upp á þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk sem vill búa sjálfstætt með góðu aðgengi að þjónustu, félagsstarfi og heilsueflingu.
Lögð er áhersla á að skapa umhverfi sem styður við öryggi, vellíðan og virkni í daglegu lífi. Fjölbreytt dagskrá og þjónusta stendur íbúum til boða. Innangengt er í félagsmiðstöðina Boðann sem Hrafnista rekur.
Þar hafa íbúar meðal annars aðgang að:
- Matsal
- Félagsstarfi
- Tækjasal
- Hárgreiðslustofu
- Fótaaðgerðastofu
- Sjúkraþjálfun
Nærumhverfið býður upp á fjölbreytta möguleika til útivistar og samveru, meðal annars sundlaug, heita potta, gönguleiðir og félagsaðstöðu.
Í Boðaþingi eru 95 íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, bæði tveggja og þriggja herbergja.