Beint í efni

Samgöngur

Öruggar og aðgengilegar samgöngur eru mikilvægur þáttur í þróun Kópavogs, hvort sem ferðast er gangandi, hjólandi, akandi eða með almenningssamgöngum.

Snjómokstur í Kópavogi veturinn 2022 til 2023.

Vetr­ar­þjón­usta

Þjónustumiðstöð Kópavogs sér um snjómokstur, hálkuvarnir og hreinsun gatna og stíga.

Nánar um vetrarþjónustu
Umferð í Kópavogi

Bíla­stæða­sjóð­ur

Bílastæðasjóður Kópavogsbæjar sér um bílastæðamál og eftirlit með stöðvun og lagningu ökutækja í bænum.

Sjá nánar

Al­menn­ings­sam­göng­ur

Strætó bs. hefur umsjón með almenningssamgöngum í Kópavogi.

Aðalskiptistöð Strætó í Kópavogi er við Hálsatorg í Hamraborg. Þaðan liggja leiðir um bæinn og til nágrannasveitarfélaga.

Breytingar á leiðarkerfi

Unnið er að breytingum á leiðakerfi Strætó sem miða að því að styðja við Borgarlínuna.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum Strætó og Borgarlínunnar.

Göngu- og hjóla­stígar

Stígakerfi Kópavogsbæjar skiptist upp í stofnleiðir, tengileiðir og almenna stíga. Stofnleiðir eru helstu samgöngustígarnir og eru greiðfærir, vel þjónustaðir allt árið og með forgang fram yfir hliðarumferð.

Tengistígar tengja stofnleiðir við almenna stíga og þéttbýlissvæði. Til þeirra teljast meðal annars tómstunda- og útivistarstígar sem eru aðallega nýttir til afþreyingar. Almennir stígar eru allir aðrir stígar sem falla ekki undir þessar skilgreiningar.

Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins, sem var undirritaður árið 2019, felur í sér sameiginlega áætlun um uppbyggingu samgönguinnviða til ársins 2033. Með sáttmálanum verður fjárfest í uppbyggingu stofnleiða fyrir gangandi og hjólandi um allt höfuðborgarsvæðið.

Samgöngur - Kópavogsbær