Beint í efni

Lóð­ir, fast­eign­ir og gjöld

Þegar kemur að lóðum og fasteignum er margt sem þarf að hafa í huga, allt frá gjöldum og samningum til eignaskipta og skráningar.

Vatnsendahvarf

Lóðar­leigu­samn­ingar

Vegna lóða í eigu Kópavogsbæjar eru gerðir lóðarleigusamningar til 50 ára, undirritaðir af þinglýstum lóðarhöfum og bæjarstjóra. Samningar byggja á skráðri stærð lóðar og þarf að endurnýja við sölu eignar eða þegar eldri samningar renna út. Almennt eru ekki takmarkanir á því að endurnýja lóðarleigusamninga, nema bæjarstjórn ákveði vegna skipulags eða af öðrum ástæðum aðra notkun á viðkomandi lóð. Gildur lóðarleigusamningur þarf að vera til staðar við afsal eignar.

Hafa samband við umhverfissvið

Fast­eigna­skrán­ing

Fasteignaskrá geymir upplýsingar um allar lóðir og mannvirki sem á þeim standa.

Byggingarfulltrúi er ábyrgur fyrir að Þjóðskrá Íslands berist upplýsingar um lönd og lóðir. Því tilheyrir breytingar á þeim og mannvirkjum sem á þeim standa.

Lóðir, fasteignir og gjöld - Kópavogsbær