Byggingar og leyfi
Áður en framkvæmdir hefjast þurfa teikningar að fá samþykki og leyfi að liggja fyrir. Í sumum tilvikum er það ekki nauðsynlegt, til dæmis við pallagerð eða viðhald á húsnæði eða lóð.
Byggingarteikningar
Á kortasjá Kópavogsbæjar má nálgast samþykktar teikningar af mannvirkjum í bænum.
Þar er að finna samþykktar aðal- og sérteikningar ásamt mæli- og hæðarblaði viðkomandi mannvirkja.
Gögn sem hægt er að nálgast:
- Útlits- og afstöðuteikningar.
- Grunnteikningar og snið.
- Skráningartöflur.
- Lagnateikningar.
- Arkitektateikningar.
- Burðarvirkisteikningar.
- Raflagnateikningar.
- Mæli- og hæðarblöð.

Byggingarfulltrúi
Byggingarfulltrúi sinnir meðal annars leyfisveitingum vegna byggingarframkvæmda og sinnir eftirliti með mannvirkjum innan sveitarfélagsins.
Breytingar á húsnæði eða lóð
Markmið verkfærakistunnar er að draga saman helstu atriði sem hafa þarf í huga við umsóknir um breytingar á húsnæði eða lóð.
Með samræmdri framsetningu og afgreiðslu mála er leitast við að styðja við gæði byggðar og auka sjálfbærni í Kópavogi til framtíðar.
Íbúar og hagsmunaaðilar sem vilja sækja um uppbyggingu eða breytingar á manngerðu umhverfi geta nýtt sér eftirfarandi leiðbeiningar. Þeim er ætlað að veita skýra yfirsýn og leiðsögn um umsóknarferlið.
Að sækja um byggingarleyfi
Hvenær þarf ég byggingarleyfi?
Þú þarft byggingarleyfi ef þú ætlar að:
- Grafa grunn fyrir hús eða mannvirki, reisa það, rífa eða flytja hús.
- Breyta byggingu, burðarkerfi eða lagnakerfi húsnæðis.
- Breyta notkun húsnæðis, útliti þess eða formi.
Hvenær þarf ég ekki byggingarleyfi?
Þú þarft ekki byggingarleyfi ef þú ert að:
- Sinna viðhaldi innanhúss, á lóðinni, við girðingar, á bílastæði eða í innkeyrslunni.
- Smíða pall.
- Setja upp skjólveggi og girðingar (innan vissra marka).
- Byggja smáhýsi, allt að 15 fermetrum að stærð, sem ekki er ætlað til gistingar eða búsetu.
Nánari upplýsingar um hvenær þarf byggingarleyfi má nálgast í Byggingarreglugerð 2.3.5 gr.
Eigendur geta sótt um sjálfir eða veitt hönnunarstjóra umboð til þess.
Umsókn er tekin fyrir af starfsfólki byggingarfulltrúa.
- Ef gögn vantar eða þau talin ófullnægjandi verður hönnuður látinn vita.
- Fundað er aðra hverja viku og eru mál þá tekin fyrir.
- Ef gerðar eru athugasemdir fær hönnuður tölvupóst með beiðni um leiðréttingar eða viðbótargögn.
- Berist umbeðin gögn ekki innan 12 mánaða fellur umsókn niður og teikningum er fargað.
Samþykki byggingarfulltrúa
- Þegar byggingaráform hafa verið samþykkt færðu tölvupóst með upplýsingum um næstu skref, hvaða gögnum þarf að skila og hvaða gjöld þarf að greiða.
- Eigandi fær kröfu í heimabanka vegna gjaldanna.
- Eigandi þarf að skrá ráðningu hönnuðar á Minn Kópavogur.
- Hönnuðir skila séruppdráttum og öðrum nauðsynlegum gögnum rafrænt á Minn Kópavogur.
Skráning byggingarstjóra og iðnmeistara.
- Skrá þarf byggingarmeistara á verkið í gegnum Minn Kópavogur.
- Byggingarstjóri skráir þá iðnmeistara sem koma að verkinu á Minn Kópavogur.
- Iðnmeistarar staðfesta þátttöku sína í verkinu á Minn Kópavogur.
Lokaúttekt
- Þegar framkvæmd er lokið er sótt um lokaúttekt á Minn Kópavogur.
- Starfsmaður byggingarfulltrúa mætir á svæðið og tekur verkið út.
- Að lokinni úttekt fá byggingarstjóri og eigandi sent lokaúttektarvottorð.