Skólagarðar
Skólagarðar eru fyrir börn á aldrinum 6–13 ára. Þar fá þau tækifæri til að rækta eigin matjurtir, læra um ræktun og njóta útiveru í skemmtilegu umhverfi og góðum félagsskap.
Kostnaður fyrir garðinn er 7.066 krónur.
Um skólagarðana
Skólagarðar hafa verið starfræktir á vegum Kópavogsbæjar í um fimmtíu ár. Þar fá börn á aldrinum 6–13 ára tækifæri til að rækta eigin matjurtir með leiðsögn starfsfólks. Börnin fá kartöfluútsæði, plöntur og fræ og uppskera síðan afrakstur sumarsins sjálf.
Auk ræktunarinnar er farið í leiki, skoðunarferðir, haldin íþróttamót, grillað og fleira skemmtilegt. Áherslan er þó fyrst og fremst á ræktun og fræðslu og því eru skólagarðarnir ekki leikjanámskeið eða gæsluvellir fyrir börn.
Allar nánari upplýsingar gefur starfsfólk skólagarðanna í síma 441 9080.
Skólagarðarnir eru opnir frá byrjun júní fram í miðjan ágúst.
Opnunartími:
- Mánudaga til fimmtudaga kl. 8:00–12:00 og 13:00–16:00
- Föstudaga kl. 8:00–12:00
Skólagarðarnir eru í umsjá Vinnuskólans í Kópavogi. Skrifstofur eru í Askalind 5 og er opnar frá 10. maí til 31. ágúst:
- Mánudaga til fimmtudaga kl. 8:00–16:00
- Föstudaga kl. 8:00–14:00
Garðarnir eru tveir og eru staðsettir við Víðigrund í Fossvogsdal og við Dalveg í Kópavogsdal.
Skráning fer fram að vori í gegnum Sportabler. Eftir skráningu birtist fljótlega greiðsluseðill í heimabanka